Mat og virðisákvörðun eigna
Mat og virðisákvörðun eigna
Kostnaðarverð er sá kostnaður sem fellur til við að eignast, byggja eða framleiða eign og koma henni í það ástand og á þann stað sem þarf til að hægt sé að nota hana.
Kostnaðarverð tekur til verðs eignarinnar sjálfrar og annars kostnaðar sem tengist henni beint. Það getur til dæmis verið kostnaður við flutning, uppsetningu eða vinnu við að gera eignina tilbúna til notkunar.
Afslættir og aðrar verðlækkanir vegna kaupanna koma til lækkunar á kostnaðarverði.
Kostnaðarverð myndar almennt grunn að upphaflegu bókfærðu virði eignar.
Endurmetið virði er virði eignar eftir að hún hefur verið endurmetin.
Við endurmat er bókfært virði eignarinnar uppfært miðað við virði hennar á matsdegi. Eftir endurmatið er þetta virði notað sem nýr grunnur við færslu eignarinnar.
Frá endurmetnu virði eru síðan dregnar afskriftir og virðisrýrnun sem verða eftir endurmatið.
Endurmetið virði getur því verið hærra eða lægra en bókfært virði eignarinnar fyrir endurmat.
Gangvirði er það verð sem fengist við sölu eignar eða yrði greitt við yfirfærslu skuldar í eðlilegum viðskiptum milli markaðsaðila á matsdegi.
Við mat á gangvirði er stuðst við markaðsupplýsingar eins og kostur er. Því áreiðanlegri og aðgengilegri sem markaðsupplýsingarnar eru, því meira vægi hafa þær við matið. Upplýsingum sem notaðar eru við matið er skipt í þrjú þrep:
Þrep 1: Matið byggist á skráðu verði á virkum markaði fyrir sams konar eign eða skuld.
Þrep 2: Matið byggist á öðrum marktækum markaðsupplýsingum, til dæmis verði á sambærilegum eignum eða markaðsvöxtum.
Þrep 3: Matið byggist að mestu á matsaðferðum og forsendum þegar nægar markaðsupplýsingar eru ekki tiltækar.
Endurmat er aðferð til að uppfæra bókfært virði eigna þannig að það endurspegli betur verðmæti þeirra á hverjum tíma.
Við endurmat er verðmæti eignar metið að nýju miðað við ákveðinn dag. Matið getur til dæmis byggst á markaðsupplýsingum eða mati sérfræðinga, eftir því um hvers konar eign er að ræða.
Endurmat getur leitt til þess að bókfært virði eignar hækkar eða lækkar. Breytingin er færð í reikningsskil samkvæmt reglum IPSAS. Hvernig hún er færð fer meðal annars eftir því hvort virði eignarinnar hækkar eða lækkar og hvort hún hefur áður verið endurmetin.
Ef endurmat er notað fyrir ákveðinn eignaflokk skal almennt beita sömu aðferð á allar eignir í þeim flokki. Endurmeta þarf eignir nægilega reglulega til að bókfært virði þeirra sé ekki verulega frábrugðið því virði sem þær eiga að vera skráðar á samkvæmt gildandi reglum.
Endurmat stuðlar þannig að því að reikningsskil ríkisaðila gefi skýrari mynd af verðmæti eigna þeirra.
