Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Lokað útboð

Gagnvirkt innkaupakerfi er innkaupakerfi sem kaupandi getur notað þegar keyptar eru almennar vörur, þjónusta eða verk sem uppfylla þarfir kaupanda.

Innkaup innan kerfisins fara fram með lokuðu útboði meðal þeirra seljenda sem hafa fengið aðild að kerfinu.

Kaupandi þarf að auglýsa öll innkaup innan kerfisins og gefa öllum seljendum sem eiga aðild að viðeigandi flokki innan kerfisins tækifæri til að leggja fram tilboð, ásamt því að gefa seljendum utan samnings tækifæri á að sækja um inngöngu og í kjölfarið tækifæri á að taka þátt í lokaða útboðinu.

Í útboðsgögnum fyrir lokað útboð þarf að koma skýrt fram hvað á að kaupa, magn, tæknilegar kröfur, afhendingarskilmálar, frestir og þær forsendur sem verða notaðar við val á tilboði.

Áður en innkaup hefjast

Kaupandi þarf að ganga úr skugga um:

  • að innkaupin falli undir gildissvið kerfisins

  • að réttur flokkur innan kerfisins sé valinn

  • að nægar upplýsingar liggi fyrir um þörf, magn og tæknilegar kröfur

  • að valforsendur séu skýrar og í samræmi við útboðsgögn kerfisins

  • að áætlað virði innkaupanna sé metið áður en ferlið hefst

Kaupandi þarf sérstaklega að gæta þess að:

  • bjóða öllum viðeigandi seljendum innan kerfisins að taka þátt

  • veita öllum seljendum sömu upplýsingar

  • gefa nægan tíma til að skila tilboði

  • nota aðeins þær valforsendur sem komu fram í útboðsgögnum

  • varðveita gögn um mat tilboða og ákvörðun um val á seljanda

  • fylgja eftir samningi eftir að kaupum er lokið

Hvernig fer lokað útboð fram?

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500