Innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum
Þegar áætlað verðmæti innkaupa er undir viðmiðunarfjárhæðum gilda einfaldari reglur en við innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum. Kaupandi þarf þó ávallt að gæta að hagkvæmni, samkeppni, jafnræði og gagnsæi við framkvæmd innkaupanna.
Almennt ber að afla tilboða eða verðupplýsinga frá eins mörgum aðilum og hægt er eftir því sem aðstæður á markaði leyfa. Markmiðið er að tryggja að opinbert fé sé nýtt með hagkvæmum hætti og að fyrirtækjum sé gefinn raunhæfur kostur á að bjóða í verkefni.
Við undirbúning innkaupa þarf einnig að gæta þess að tæknilýsingar séu málefnalegar, skýrar og í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup. Tæknilýsingar mega ekki takmarka samkeppni umfram það sem nauðsynlegt er.
Nánari upplýsingar er að finna í 24. gr. laga um opinber innkaup um innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum og 49. gr. laganna um tæknilýsingar.
