Grunnur reikningsskila
Rekstrargrunnur er bókhaldsaðferð þar sem tekjur og gjöld eru skráð þegar þau myndast, ekki þegar peningarnir eru greiddir eða berast.
Tekjur eru skráðar þegar fyrirtæki afhendir vöru eða þjónustu
Gjöld eru skráð þegar þau tilheyra rekstrinum, jafnvel þó þau séu ekki greidd strax
Bókhald ríkissjóðs er á rekstrargrunni
Greiðslugrunnur er bókhaldsaðferð þar sem tekjur og gjöld eru skráð þegar peningarnir raunverulega berast eða eru greiddir.
Tekjur → skráðar þegar greiðsla berst
Gjöld → skráð þegar greiðsla er innt af hendi
Ríkisjóður er ekki á greiðslugrunni
Samstæða er hugtak í bókhaldi sem vísar til móðurfélags og dótturfélaga þess sem eru reikningshaldslega sameinuð og sýnd sem ein heild.
Samstæða er þegar:
Eitt félag (móðurfélag/ríkissjóður) á yfirráð yfir öðru/öðrum félögum (dótturfélög/fjárlagaliðir/stofnanir/ríkisfyrirtæki)
Reikningsskil þeirra eru sameinuð (samstæðureikningsskil)
Þau eru því talin ein heild í reikningsskilum, þótt þau séu sjálfstæðir lögaðilar.
