Greiðslur
Almennt um greiðslur
Reikningar eru greiddir daglega.
Þegar stofnun hefur samþykkt reikning er hann greiddur á eindaga samkvæmt greiðsluskilmálum ríkissjóðs.
Útsvar er greitt til sveitarfélaga daglega.
Greiðslur til bænda eru að jafnaði greiddar einu sinni í mánuði.
Greitt er síðasta virka dag mánaðar. Ef sá dagur er föstudagur er greitt deginum áður.
Kirkju- og sóknargjöld eru greidd einu sinni í mánuði.
Kílómetragjald er lagt á mánaðarlega samkvæmt áætlun um meðalakstur. Álagning og breytingar fara fram í hverjum mánuði.
Álagning einstaklinga fer fram eftir að skattframtali hefur verið skilað og álagning liggur fyrir. Álagningarseðill er birtur í lok maí.
Greitt er í nokkrum jöfnum greiðslum yfir árið.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar. Eindagi er síðasti virki dagur hvers mánaðar.
Álagning lögaðila fer fram eftir að álagningarseðill hefur verið birtur í lok október.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar. Eindagi er síðasti virki dagur hvers mánaðar.
Fyrirframgreiðslur eru greiddar frá febrúar til september.
Álagning virðisaukaskatts er í umsjón Ríkisskattstjóra.
Þegar inneign hefur myndast í kerfinu er greitt út sjálfkrafa. Ef endugreiðsla berst ekki getur verið að það vanti upplýsingar um bankareikning og það er hægt að skrá hann á mínum síðum á www.island.is
Inneignir vegna skatta og gjalda eru greiddar út daglega í sjálfvirkri útborgun.
Ef endugreiðsla berst ekki, getur verið að það vanti upplýsingar um bankareikning og það er hægt að skrá hann á mínum síðum á www.island.is
