Þróun þjónustulags gagnavistkerfis og Model Context Protocol (MCP) viðmóts.
28. september 2026
Fjársýsla ríkisins („Fjársýslan“), kt. 540269-7509, í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið („MRN“), kt. 460269-2969, óskar eftir tilboðum í þróun þjónustulags gagnavistkerfis og Model Context Protocol (MCP) viðmóts.

Um er að ræða verðfyrirspurn vegna innkaupa undir viðmiðunarfjárhæðum, sbr. 24. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL).
Markmiðið er að þróa og innleiða nothæft og öruggt gagnavistkerfi sem gerir skilgreindum notendahópi kleift að nýta gervigreind til að spyrja spurninga á náttúrulegu máli um afmarkað gagnasvið og fá rekjanleg svör sem byggð eru á samþykktum gögnum, viðskiptaskilgreiningum og aðgangsheimildum.
Lausnin á að styðja upplýsta ákvarðanatöku um rekstur, fjármál og afkomu stofnana, draga fram frávik og áhættumerki, bera saman sambærilegar stofnanir og styðja við frekari greiningu. Ábyrgð og ákvörðunartaka verður áfram hjá starfsfólki og stjórnendum.
Verðfyrirspurnargögn má nálgast hér að neðan:
Tilboðum skal skilað á netfangið sigurjon.thrainsson@fjs.is
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Þráinsson, sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs, sigurjon.thrainsson@fjs.is.
Áfangi | Dagsetning |
Fyrirspurnarfrestur | 6. október 2026 |
Svarfrestur | 9. október 2026 |
Skilafrestur | 14. október 2026 |
Fyrirhugað verktímabil | 1. nóvember 2026 – 31. janúar 2027 |
