Stærsti greiðsludagur ársins hjá Fjársýslunni
1. júní 2026
Í nótt fóru fram stærstu útgreiðslur ársins hjá Fjársýslu ríkisins þegar inneignir vegna álagningar skattársins 2025 voru greiddar út samhliða launum ríkisstarfsfólks.

Samtals námu útgreiðslurnar um 51 milljarði króna og fóru þær fram í samstarfi við Reiknistofu bankanna (RB). Um er að ræða umfangsmesta greiðsludag ársins bæði hjá Fjársýslunni og RB.
Greiddar voru skattainneignir að fjárhæð um 35 milljarðar króna til um 224 þúsund einstaklinga. Jafnframt voru greidd laun starfsfólks ríkisins að fjárhæð um 16,5 milljarðar króna til um 28 þúsund aðila. Heildarlaun og launatengd gjöld námu rúmlega 27 milljörðum króna.
Greiðslurnar gengu vel fyrir sig og voru lagðar inn á reikninga viðtakenda samkvæmt áætlun.
