Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Ríkisreikningur 2025 kominn út 

3. júlí 2026

Ríkisreikningur fyrir árið 2025 hefur verið gefinn út og er nú aðgengilegur á vef Stjórnarráðs Íslands. Ríkisreikningurinn veitir heildstæða mynd af afkomu, efnahag og sjóðstreymi ríkissjóðs á árinu og er settur fram á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila (IPSAS). 

Ríkisreikningurinn er birtur í þremur hlutum: 

  • Samstæðuársreikningur ríkisins í heild, sem sýnir fjárhag alls ríkisins. 

  • Samstæðuársreikningur A-hluta ríkissjóðs, sem nær til kjarnastarfsemi ríkissjóðs. 

  • Séryfirlit A1-hluta ríkissjóðs, sem veita nánari upplýsingar um einstaka tekju- og gjaldaliði ríkissjóðs. 

Afkoma ársins 2025 

Afkoma ríkisins í heild á árinu 2025 var neikvæð um 182 ma.kr., samanborið við neikvæða afkomu upp á 56 ma.kr. árið áður. Breyting á afkomu á milli áranna skýrist einkum af því að gjaldfærð breyting á lífeyrisskuldbindingu jókst um 93 ma.kr. meðal annars vegna hækkunar launavísitölu. Jafnframt hækkaði kostnaður vegna tilfærslna um 37 ma.kr., launakostnaður um 34 ma.kr. og kostnaður vegna vátryggingasamninga tryggingafélaga í ríkisreikningi um 31 ma.kr. 

Breytingar á eigin fé og innleiðing nýrra staðla 

Eigið fé ríkissjóðs í heild var neikvætt um 155 ma.kr. í árslok 2025. Heildarskuldbindingar ríkissjóðs eru umfram bókfært virði eigna þess. Þetta endurspeglar einkum umfang langtímaskuldbindinga, svo sem lífeyrisskuldbindinga sem færðar eru samkvæmt reikningsskilareglum. Í árslok 2025 voru lífeyrisskuldbindingar 1.105 ma.kr. Í yfirliti um breytingar á eigin fé er gerð grein fyrir leiðréttingum á eiginfjárstöðu í upphafi árs, sem leiddu til þess að eigið fé lækkaði um 242 ma.kr. Breytingarnar má meðal annars rekja til innleiðingar nýrra staðla og viðbragða við ábendingum í endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar vegna ársins 2024 um frávik frá gildandi stöðlum. Nánari umfjöllun er að finna í yfirliti um breytingar á eigin fé, ásamt tilvísunum í viðeigandi skýringar í ársreikningnum. 

Ríkisreikningur birtur á vef Stjórnarráðs Íslands 

Ríkisreikningurinn er gefinn út á rafrænu formi og er aðgengilegur öllum á vef Stjórnarráðs Íslands.  

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500