Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Innheimtugagnavinnsla lögaðila í samvinnu við Skattinn

31. október 2023

Fjársýslan hefur undanfarið unnið að Innheimtugagnavinnslu lögaðila í samvinnu við Skattinn. Í vinnslunni eru lagðir skattar, samkvæmt framtali, á aðila í atvinnurekstri (lögaðila). 

Greiðslur

Innheimtu- og álagningarseðla er hægt að nálgast á www.island.is og á www.skattur.is  Greiðsluseðlar vegna álagningar hafa verið birtir á Ísland.is og sendir til skeytamiðlunar fyrir lögaðila sem nýta sér þá þjónustu.

Miðvikudaginn 1. nóvember verða greiddar út inneignir að upphæð  kr. 23,5 milljarða til rúmlega 8 þúsund lögaðila.

Inneignir upp á kr. 3,0 milljarða verða greiddar út síðar.

Hægt er að nálgast greiðslustöðu undir fjármál á www.island.is en nánari upplýsingar veita Innheimtumenn ríkissjóðs.

Fjársýslan

Afgreiðslutími

Mánudaga-fimmtudaga kl. 9-15
föstudaga kl. 9-13

Sími: 545 7500

|

Katrínartún 6

|

105 Reykjavík

|

kt. 540269-7509

|

postur@fjarsyslan.is