Fjársýslan vinnur að nýjungum í greiðsluumhverfi opinberrar þjónustu
30. apríl 2026
Framþróun á fjártæknimarkaði býður upp á tækifæri til að skapa hagræði í greiðsluumhverfi ríkisins. Fjársýslan vinnur nú að umbótaverkefni á sviði greiðslumiðlunar með það að markmiði að lækka færslukostnað og bæta þjónustu við greiðslur fyrir almenning og fyrirtæki.

Fyrsta skrefið er samþætting á nýjum greiðslumáta við greiðslukerfi Ísland.is sem opnar fyrir greiðsluþjónustu aðra en hefðbundinna kortagreiðslna. Þetta er gert í tímabundnu þróunarsamstarfi við fjártæknifyrirtækið Blikk. Með tengingunni geta notendur framvegis greitt fyrir opinbera þjónustu ekki aðeins með greiðslukorti heldur einnig með millifærslu beint af eigin bankareikningi.
Greiðslukerfi Ísland.is sendir greiðslubeiðni til Blikk sem virkjar greiðslu eða millifærslu af bankareikningi greiðanda yfir á reikning Ríkissjóðs. Samþykki notandi beiðnina fer millifærslan fram og þjónustan sem sótt er um verður afgreidd strax. Dæmi um slíka þjónustu eru meðal annars útgáfa skuldleysisvottorða, eigendaskipti ökutækja og ýmis konar leyfisveitingar.
Fjársýslan mun styðjast við niðurstöður verkefnisins í ákvarðanatöku um útfærslu og innkaup á greiðsluþjónustu ríkisins til lengri tíma.
Nú þegar er greiðslukerfi Ísland.is tengt umsóknarkerfi Ísland.is, umsóknarkerfi Hugverkastofu og Skattsins. Á næstunni er stefnt að því að innleiða greiðslukerfið undir „Fjármál" á Ísland.is, þar sem notendur geta greitt ýmis opinber gjöld.
