Fjársýslan tekur þátt í evrópsku þróunarverkefni á sviði gervigreindar
25. júní 2026
Fjársýslan er þátttakandi í GovTech4All verkefni þar sem þróuð er gervigreindarlausn fyrir gerð útboðsgagna í samstarfi við erlenda aðila.

Helsti lærdómar verkefnisins er að gervigreind nýtist afar vel sem stuðningur við sérfræðinga en kemur alls ekki í stað þeirra. Áhersla er því lögð á samvinnu innkaupa- og faglegra sérfræðinga þar sem gervigreind hjálpar til við vinnuferlið og miðlar fyrri gögnum.
Nálgunin hefur þegar skilað jákvæðum niðurstöðum í prófunum og bendir til að slík verkfæri geti aukið gæði og skilvirkni í opinberum innkaupum.
Sjá nánar á [interopera....europa.eu]
