Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Fjársýslan tekur þátt í evrópsku samstarfi um opinber innkaup á nýsköpun

18. júní 2026

Fjársýslan hefur lokið ráðgjafarverkefni í samstarfi við Innovation Procurement Hubs, evrópskt verkefni á vegum Public Buyers Community sem styður opinbera aðila á Evrópska efnahagssvæðinu við að efla þekkingu á aðferðum fyrir innkaup á nýsköpun.

Fjársýslan hefur lokið ráðgjafarverkefni í samstarfi við Innovation Procurement Hubs, evrópskt verkefni á vegum Public Buyers Community sem styður opinbera aðila á Evrópska efnahagssvæðinu við að efla þekkingu á aðferðum fyrir innkaup á nýsköpun.

Verkefnið beindist að því að styrkja verklag Fjársýslunnar við undirbúning nýsköpunarinnkaupa, einkum á fyrstu stigum áður en formlegt innkaupaferli hefst. Áhersla var lögð á þarfagreiningu, samtal við markaðinn og mótun kröfulýsinga fyrir útboð. Í verkefninu voru einnig kynnt hagnýt dæmi og sniðmát sem geta nýst við að gera undirbúning innkaupa markvissari, skýrari og samræmdari.

Ráðgjöfin tók jafnframt til stjórnunar og hugarfars í tengslum við nýsköpunarinnkaup, með það að markmiði að efla sameiginlegan skilning á því hvernig opinber innkaup geta stutt við nýsköpun og betri lausnir í opinberri þjónustu.

Þátttaka Fjársýslunnar er liður í áframhaldandi vinnu stofnunarinnar við að þróa opinber innkaup og styðja opinbera kaupendur við faglegan undirbúning, virkt markaðssamtal og aukna nýsköpun í innkaupum.

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500