Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Fjársýslan leitar fjártæknilausna

13. nóvember 2024

Nýtt verkefni í opinberri nýsköpun á vegum Fjársýslunnar og Fjártækniklasans er í burðarliðnum.

Áskorunin

Fjársýslan sinnir bókhaldsþjónustu fyrir um 150 A-hluta stofnanir og um 30 stærri stofnanir halda eigið bókhald. Samtals eru þessar stofnanir með um 1.400 – 1.500 viðskiptakort í rekstri.

Áskorun Fjársýslunnar er tvíþætt:

  • Mikil handavinna fylgir uppgjöri viðskiptakorta og tafir á gagnaskilum skapa mikla álagspunkta á fjármálasviði Fjársýslunnar

  • Ófullkomin gagnaskil skekkja yfirsýn innkaupagagna ríkisins

Í samstarfi við Fjártækniklasann óskar Fjársýslan eftir áheyrn fyrirtækja á fjártæknimarkaði á sérstökum kynningarfundi um áskorunina þar sem þörf Fjársýslunnar verður gerð skýr skil og fyrirtæki geta lagt fram fyrirspurnir í umræðu við fulltrúa Fjársýslunnar að kynningu lokinni.

Og hvað svo?

Í kjölfar kynningarfundarins mun Fjársýslan óska eftir tímabundnu samstarfi um prófanir fjártæknilausna sem teljast mæta þörfum stofnunarinnar. Samstarfið verður skilgreint sem liður í undirbúningi Fjársýslunnar að fyrirhuguðum innkaupum á nýsköpun í bókhaldsþjónustu ríkisins og innleiðingu lausna í fjármálastarfsemi A-hluta stofnana.

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500