Bókhald og reikningsskil ríkisins
Bókhald og reikningsskil gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja gagnsæi, ábyrga meðferð opinbers fjár og áreiðanlegar upplýsingar um fjármál ríkisins.
Reikningsskil A-hluta ríkisins eru unnin samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum fyrir opinbera aðila (IPSAS).
Reikningsskil eru færð á rekstrargrunni. Það þýðir að tekjur og gjöld eru skráð þegar þau falla til, en ekki þegar greiðsla fer fram.
Þessi aðferð gefur skýrari mynd af fjárhagslegri stöðu ríkisins, þar á meðal eignum, skuldum, kröfum og skuldbindingum.
Fjárheimild er heimild Alþingis til að nota opinbert fé í tiltekin verkefni á fjárhagsárinu.
Fjárheimild segir til um hámarksupphæð sem má nota fyrir ákveðið málefnasvið, málaflokk, stofnun eða verkefni.
Ríkisstofnun má ekki greiða út fé nema hún hafi fjárheimild fyrir útgjöldunum.
Fjárveitingar til stofnana og verkefna eru sýndar í sérstöku fylgiriti með frumvarpinu og með fjárlögunum eftir að þau hafa verið samþykkt, birt á vef fjármálaráðuneytisins.
Ríkisaðilar starfa innan þeirra fjárheimilda sem Alþingi samþykkir í fjárlögum.
Samkvæmt lögum um opinber fjármál þurfa ríkisaðilar að skrá ársáætlanir sínar í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins. Ef útgjöld fara umfram fjárheimild við árslok hefur það áhrif á fjárheimild næsta árs.
Dæmigert ferli í bókhaldi ríkisaðila er:
Reikningur berst.
Reikningur er yfirfarinn.
Reikningur er samþykktur.
Kostnaður er flokkaður á rétt viðfang og fjárheimild.
Reikningur er bókaður.
Reikningur er greiddur.
Færslan verður hluti af uppgjöri og síðar ársreikningi og ríkisreikningi.
Ríkisreikningur tekur til allrar starfsemi ríkisins og skiptist í A-, B- og C-hluta.
Ríkisreikningur er birtur innan sex mánaða frá lokum reikningsárs. Þar koma meðal annars fram:
tekjur og gjöld ríkisins
samanburður við fjárlög og fjárheimildir
eignir og skuldir
samantekt um rekstur ríkisaðila
Á sama tíma birtir Fjársýslan ársreikninga einstakra ríkisaðila.
Fjársýslan hefur yfirumsjón með samræmi í bókhaldi og reikningsskilum ríkisaðila í A1- og A2-hluta.
Ábyrgð á rekstri, innra eftirliti og fjármálum hvers ríkisaðila liggur þó hjá forstöðumanni eða stjórn viðkomandi aðila.
Bókhald ríkisins er grundvöllur eftirlits með ráðstöfun opinbers fjár.
Alþingi, ráðuneyti, Ríkisendurskoðun, fjölmiðlar og almenningur geta nýtt upplýsingarnar til að fylgjast með hvernig fjármunum ríkisins er varið. Ríkisendurskoðun annast endurskoðun ríkisreiknings og ársreikninga ríkisaðila.
Upplýsingar úr bókhaldi ríkisins birtast meðal annars í ríkisreikningi og opnum reikningum.
Athugið: Reglur og viðmið um ferðakostnað og ferðauppgjör eru sett af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Upplýsingar á þessari síðu eru birtar til leiðbeiningar. Komi upp misræmi milli upplýsinga hér og á vef ráðuneytisins gilda upplýsingar ráðuneytisins.
Stofnun greiðir að jafnaði kostnað vegna ferða innanlands á hennar vegum. Það á meðal annars við um fargjöld, gistingu og fæði.
Greiðsla ferðakostnaðar innanlands
Stofnunin greiðir ferðakostnað beint þegar það er hægt
Ef starfsmaður leggur út fyrir ferðakostnaði fær hann kostnaðinn endurgreiddan gegn fullnægjandi reikningum eða kvittunum
Endurgreiðslan fer eftir reglum og verklagi stofnunarinnar
Dagpeningar
Dagpeningar eru almennt ekki greiddir vegna ferða innanlands þegar hægt er að greiða eða endurgreiða raunverulegan ferðakostnað samkvæmt reikningum.
Athugið: Reglur og viðmið um ferðakostnað og ferðauppgjör eru sett af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Upplýsingar á þessari síðu eru birtar til leiðbeiningar. Komi upp misræmi milli upplýsinga hér og á vef ráðuneytisins gilda upplýsingar ráðuneytisins.
Sækja um ferðauppgjör
Þú getur fengið endurgreiddan kostnað vegna vinnuferðar á vegum ríkisins með því að skila ferðauppgjöri í því kerfi sem stofnunin þín notar, til dæmis Orra.
Hvenær áttu rétt á ferðauppgjöri?
Þú átt rétt á ferðauppgjöri ef:
ferðin var farin á vegum vinnuveitanda,
ferðin var samþykkt fyrirfram,
kostnaðurinn tengist starfi þínu.
Hvaða kostnaður er endurgreiddur?
Þú getur fengið endurgreiðslu vegna:
flugs og annarra fargjalda,
gistingar,
samgangna, svo sem leigubíla eða almenningssamgangna,
bílastæða og vegtolla,
annars nauðsynlegs ferðakostnaðar.
Yfirleitt þarftu að skila kvittunum fyrir útgjöldum.
Dagpeningar
Þú gætir átt rétt á dagpeningum vegna útgjalda eins og fæðis og smærri tilfallandi kostnaðar.
Upphæð dagpeninga fer eftir áfangastað og lengd ferðar.
Máltíðir sem innifaldar eru í ferðinni, til dæmis morgunverður á hóteli, eru dregnar frá dagpeningum samkvæmt gildandi reglum.
Gott að hafa í huga
Skilaðu ferðauppgjöri eins fljótt og auðið er eftir ferð.
Gakktu úr skugga um að allar upplýsingar séu réttar.
Fylgdu reglum og verklagi stofnunarinnar um ferðakostnað.
Reglur sem gilda
Ferðauppgjör byggir á:
reglum ríkisins um ferðakostnað,
gildandi kjarasamningum,
verklagsreglum viðkomandi stofnunar.
Athugið: Reglur og viðmið um ferðakostnað og ferðauppgjör eru sett af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Upplýsingar á þessari síðu eru birtar til leiðbeiningar. Komi upp misræmi milli upplýsinga hér og á vef ráðuneytisins gilda upplýsingar ráðuneytisins.
Skráðu ferðina í kerfi stofnunarinnar.
Fylltu inn upplýsingar um ferðina.
Skráðu ferðakostnað.
Hladdu upp kvittunum og öðrum fylgigögnum.
Sendu uppgjörið til samþykktar.
Hvað gerist næst?
Þegar ferðauppgjörinu hefur verið skilað:
fer yfirmaður eða fjármáladeild yfir uppgjörið,
er uppgjörið samþykkt ef upplýsingar og gögn eru í lagi,
er endurgreiðsla greidd út samkvæmt verklagi stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar um ferðakostnað má finna á vef Fjármálaráðuneytisins.
Styrkur er fjárhagslegur stuðningur við verkefni eða ákveðið markmið.
Einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir geta fengið styrki. Yfirleitt þarf ekki að endurgreiða styrk ef farið er eftir skilyrðum styrkveitanda.
Hvað fellur undir styrkhæf verkefni?
Styrkir eru veittir til margvíslegra verkefna. Dæmi um styrki eru:
náms- og rannsóknastyrkir fyrir nám, rannsóknir og vísindaverkefni,
nýsköpunarstyrkir fyrir fyrirtæki og frumkvöðla,
menningarstyrkir fyrir listir, bókaútgáfu og menningarviðburði,
umhverfis- og loftslagsstyrkir fyrir verkefni á sviði umhverfis- og loftslagsmála.
Hvernig er sótt um styrk?
Umsóknarferlið er mismunandi eftir styrkjum.
Yfirleitt þarf að:
finna styrk sem hentar verkefninu,
kynna sér skilyrði og umsóknarfrest,
senda inn umsókn og upplýsingar um verkefnið,
bíða eftir niðurstöðu.
Ef umsókn er samþykkt er styrkur greiddur samkvæmt ákvörðun styrkveitanda og þeim skilmálum sem gilda um styrkinn.
Þarf að skila skýrslu?
Yfirleitt þarf að gera grein fyrir því hvernig styrkurinn var nýttur.
Það getur falið í sér að skila skýrslu um framgang verkefnis og ráðstöfun fjármuna.
Hvar finn ég upplýsingar um styrki?
Styrkir og sjóðir Stjórnarráðsins
Á vef Stjórnarráðsins er að finna upplýsingar um sjóði og styrki á vegum ráðuneyta.
Stjórnarráðið | Styrkir og sjóðir
Þar má meðal annars finna:
upplýsingar um styrki,
umsóknarfresti,
skilyrði styrkja,
upplýsingar um úthlutanir.
Styrkir og tækifæri hjá Rannís
Á vef Rannís eru upplýsingar um opinbera sjóði og styrkjaáætlanir.
Þar má meðal annars finna:
upplýsingar um umsóknir,
úthlutanir,
styrkþega,
styrkt verkefni.
Annað sem varðar styrki
Líkamsræktarstyrkir og samgöngustyrkir fara í gegnum launavinnslu.
Styrkir og framlög til starfsmannafélaga færast á tegund 51970 með bókunartákni 1.
Málefnasvið og málaflokkar eru notuð til að flokka starfsemi og fjárveitingar ríkisins.
Málefnasvið
Málefnasvið eru 35 talsins og byggja á alþjóðlegum flokkunarstaðli Sameinuðu þjóðanna fyrir opinber gjöld. Hvert málefnasvið nær yfir skyld verkefni og viðfangsefni sem tengjast sama málaflokki stjórnsýslunnar.
Málaflokkar
Málaflokkar eru undirflokkar málefnasviða og fela í sér afmarkaða flokka stjórnarmálefna sem hafa sameiginleg einkenni eða markmið.
Málefnasvið og fjármálaáætlanir
Í fjármálaáætlun eru birtar áætlanir um fjárheimildir ríkisins til næstu fimm ára, sundurliðaðar eftir málefnasviðum. Frumvarp til fjárlaga skal taka mið af markmiðum fjármálaáætlunar.
Alþingi veitir fjárheimildir til gjalda í fjárlögum og fjáraukalögum. Fjárheimildir eru flokkaðar eftir málefnasviðum og í fylgiskjölum fjárlaga er jafnframt að finna nánari sundurliðun eftir ráðuneytum, málaflokkum og fjárlagaviðfangsefnum.
Tengsl við stofnanir og fjárlagaliði
Stofnun eða fjárlagaliður getur haft fleiri en eitt fjárlagaviðfangsefni. Í slíkum tilvikum geta viðfangsefnin fallið undir mismunandi málefnasvið og málaflokka.
Mælaborð Fjársýslunnar eru aðgengileg í Power BI fyrir notendur með viðeigandi aðgangsréttindi.
Opna mælaborð í Power BI
Farðu á Power BI
Veldu Apps í valmyndinni.
Smelltu á Get app
Veldu Organizational apps
Þar birtast öpp Fjársýslunnar sem þú hefur aðgang að.
Smelltu á það app sem þú vilt opna.
Þegar app hefur verið sótt birtist það sjálfkrafa á listanum yfir öppin þín.
Nota mælaborð í Teams
Einnig er hægt að opna og nota mælaborðin í Microsoft Teams.
Vantar þig aðstoð?
Ef þú þarft aðstoð við aðgang eða notkun mælaborða geturðu haft samband við sérfræðinga Fjársýslunnar.
Fjárheimild
Heimild Alþingis til útgjalda samkvæmt fjárlögum.
Innra eftirlit
Verklag sem stuðlar að réttri meðferð fjármuna og áreiðanlegum upplýsingum.
Rekstrargrunnur
Tekjur og gjöld eru færð þegar þau falla til, óháð því hvenær greitt er.
Ríkisaðili
Stofnun, verkefni eða önnur eining sem tilheyrir ríkinu.
Ríkisreikningur
Heildaruppgjör ríkisfjármála fyrir liðið ár.
Ársreikningur ríkisaðila
Reikningsskil einstakrar stofnunar eða annars ríkisaðila.
