Birgðir og skuldbindingar
Skuldbindandi samningar eru samningar sem ríkisaðilar staðfesta og hafa fjárhagsleg áhrif.
Til skuldbindandi samninga teljast:
leigusamningar
rekstrarsamningar
þjónustusamningar
styrktar samningar
samstarfssamningar
Forstöðumenn ríkisaðila bera ábyrgð á að skrá upplýsingar um samninga í samningakerfi Fjársýslunnar.
Upplýsingar í samningakerfinu eru notaðar við:
innkaupamælaborð ríkisins
eftirlit með framkvæmd fjárlaga
gerð séryfirlits í ríkisreikningi
Birgðir eru vörur eða efni sem stofnanir eiga til að selja áfram eða nota í rekstri.
Birgðir eru skráðar sem eign í efnahagsreikningi, nánar tiltekið undir:
veltufjármunir (þar sem þeim er ætlað að breytast í peninga tiltölulega fljótt).
Birgðir hafa áhrif á rekstrarreikning:
Aukning birgða → minna selt → lægri kostnaður tímabilsins
Minnkun birgða → meira selt → hærri kostnaður tímabilsins
