Bein kaup
Efnisyfirlit
Bein kaup eru kaup innan rammasamnings þegar keypt er beint af seljanda innan samnings.
Þau koma til greina þegar rammasamningur hefur að geyma alla þá skilmála og skilyrði sem þarf til að ákveða við hvaða seljanda skuli eiga viðskipti.
Fyrirkomulag beinna kaupa getur verið mismunandi eftir rammasamningum og köflum. Kaupandi þarf því alltaf að kynna sér skilmála viðkomandi samnings áður en kaup fara fram.
Bein kaup með einum seljanda
Ef rammasamningur er gerður við einn seljanda fara kaup almennt fram beint við þann seljanda, í samræmi við skilmála samningsins.
Kaupandi skoðar kjör samningsins í samningakerfi Fjársýslunnar, til dæmis verð, afslætti, vörukörfu, þjónustulýsingu eða aðra samningsbundna skilmála. Að því loknu er haft samband við seljanda og gengið frá kaupum samkvæmt þeim kjörum sem samningurinn kveður á um.
Bein kaup með fleiri en einum seljanda
Ef rammasamningur er gerður við fleiri en einn seljanda þarf að liggja fyrir hvernig velja skuli seljanda við bein kaup. Aðferðin er ákveðin í hverjum rammasamningi fyrir sig og getur því verið mismunandi milli samninga.
Í sumum rammasamningum er einungis heimilt að kaupa beint af þeim seljanda sem býður hagkvæmustu kjörin samkvæmt niðurstöðu útboðs. Ef sá seljandi getur ekki afhent vöru eða þjónustu, eða uppfyllir ekki þörf kaupanda samkvæmt skilmálum samningsins, getur þurft að leita til næsta seljanda eða efna til örútboðs, eftir því sem samningurinn kveður á um.
Í öðrum rammasamningum getur verið heimilt að eiga bein kaup við fleiri en einn seljanda. Þá þarf að fylgja þeirri hlutlægu aðferð sem lýst er í samningnum, til dæmis vali eftir verði, afslætti, röðun seljenda, afhendingartíma, hæfi til að mæta þörf kaupanda eða öðrum fyrir fram skilgreindum forsendum.
