Ársreikningur
Ársreikningur
Ársreikningur er yfirlit sem sýnir afkomu og fjárhagsstöðu aðila í lok reikningsárs.
Ársreikningur er gefinn út einu sinni á ári og tekur til eins rekstrarárs.
Helstu hlutar ársreiknings
Rekstrarreikningur
Rekstrarreikningur sýnir tekjur og gjöld á tímabilinu.
Niðurstaðan er annað hvort hagnaður eða tap.
Efnahagsreikningur
Efnahagsreikningur sýnir eignir, skuldir og eigið fé á tilteknum degi.
Grunnjafnan er:
Eignir = Skuldir + Eigið fé
Sjóðstreymisyfirlit
Sjóðstreymisyfirlit sýnir hreyfingar á handbæru fé á tímabilinu.Sjóðstreymi skiptist í:
rekstrarstarfsemi,
fjárfestingarstarfsemi,
fjármögnunarstarfsemi.
Skýringar
Skýringar veita nánari upplýsingar um einstaka liði ársreikningsins.Þær lýsa meðal annars:
reikningsskilaaðferðum,
forsendum sem liggja að baki reikningsskilunum.
Ársreikningar ríkisaðila
Ársreikninga ríkisaðila má finna á vefnum Ársreikningar opinberra aðila.
Ársreikningur