Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

14. apríl 2026

Umsókn um byggðakvóta 2025/2026 (6)

Byggðakvóti
2026

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.

Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 og auglýsingu (3) um sérreglur sveitafélaga um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026.

Úthlutað er fyrir:

  • Norðurfjörð

  • Sauðárkrók

  • Hofsós

Leiðbeiningar:

  • Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota rafræn skilríki útgerðaraðila. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.

  • Þegar sótt er um í sveitarfélagi þar sem er vinnsluskylda þarf yfirlýsing um vinnslu afla að vera undirrituð og staðfest af sveitarfélaginu og henni skilað til Fiskistofu svo úthlutun geti farið fram.

  • Niðurstaða umsóknar verður eingöngu birt í pósthólfi umsækjanda inn á Ísland.is

    Óski umsækjandi eftir bréfi með öðrum leiðum þarf að senda beiðni um slíkt á fiskistofa@fiskistofa.is.

  • Umsóknafrestur er til og með 28. apríl 2026.

Nánari upplýsingar um byggðakvóta og umsóknargátt.