Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Áhrif á blóðgjöf

Ýmislegt getur haft áhrif á hvort þú megir/getir gefið blóð, svo sem lyf, sjúkdómar, ferðalög og fleira. Þessar upplýsingar geta breyst og eru aðeins til viðmiðunar. Hjúkrunarfræðingur í Blóðbankanum metur hæfi blóðgjafa út frá heilsufarsupplýsingum og viðtali.

Síað eftir:

J07 - Bóluefni

J07A: Bakteríubóluefni J07B: Veirubóluefni

Áhrif á blóðgjöf

  • Lifandi bóluefni: Má ekki gefa blóð ef innan við 4 vikur hafa liðið frá bólusetningu.

  • Dauð bóluefni: Enginn frestur ef líðan er góð.

Má ekki gefa blóð ef stungustaður er bólginn, ekki fullkomlega gróinn eða merki um sýkingu / veikindi eftir bólusetningu.

Undantekningar og athugasemdir

Lykilorð: J07A: Barnaveiki, kíghósti, kikhósti, stífkrampi (Boostrix, J07AJ52), hemofilus influensa (Act-HIB, J07AG01), Kólera (Dukoral, J07AE01), Meningókokkar (MenQuadfi/ Nimenrix, J07AH08), Pnemókokkar (Pneumovax, J07AL01, Prevenar 13, 20, Vaxneuvance, J07AL02, Synflorix, J07AL52), Heilahimnubólga, meningitis (NeisVac-C J07AH07), Taugaveikisbóluefni (Typhim Vi, J07AP03) J07B: Veirubóluefni: Heilabólguveira TBE (encefalit), (TicoVac J07BA01), Inflúensa (Influvatetra, Vaxigrip Tetra, J07BB02), Lifrarbólga B (Engerix, B J07BC01), Lifrarbólga A (dauð veira, HarvixJ07BC02), Lifrarbólgubóluefni /blöndur (Twinrix J07BC20), Mislingabóluefni (M-M-RVAXPRO, J07BD52, ProQuad, J07BD54), Bóluefni við niðurgangi að völdum rótaveiru, (RotaTeq, J07BH02), Hlaupabólubóluefni (veikluð veira, Varilrix, Varivax, J07BK01), Gulusóttarbóluefni (veikluð veira, Stamaril, J07BL01), Papillomaveirubóluefni (Gardasil 9, J07BM03), Covid-19-bóluefni (Comirnaty, J07BN01, Nuvaxovid, J07BN04), Önnur veirubóluefni (Abrysvo J07BX05, IMVANEX, J07BX) J07C: Bakteríu- og veiru í blöndum: Boostrix Polio/ Repevax, Pentavac

Gildir frá: 18. mars 2026