J07 - Bóluefni
J07A: Bakteríubóluefni J07B: Veirubóluefni
Áhrif á blóðgjöf
Lifandi bóluefni: Má ekki gefa blóð ef innan við 4 vikur hafa liðið frá bólusetningu.
Dauð bóluefni: Enginn frestur ef líðan er góð.
Má ekki gefa blóð ef stungustaður er bólginn, ekki fullkomlega gróinn eða merki um sýkingu / veikindi eftir bólusetningu.
Undantekningar og athugasemdir
Lifandi bóluefni (veiklaðar veirur eða bakteríur): Frestur fyrir blóðgjöf er 4 vikur: Dæmi: mislingar, hettusótt, rauðir hundar, hlaupabóla, gulusótt, berklar, mænusótt (inntökulyf), taugaveiki (inntökulyf).
Bólusetningu gegn bólusótt (kúabólu): Ekki má gefa blóð ef innan við 8 vikur hafa liðið frá bólusetningu og / eða húð hefur ekki fullgróið.Dauð bóluefni (óvirkar/ dauðar veirur, bakteríur eða rikkettsíur): Enginn frestur ef líðan er góð og viðkomandi hefur ekki komist í tæri við veiruna. Dæmi: HPV, inflúensa, barnaveiki, kíghósti, stífkrampi, lifrarbólguveira A, lungnabólgubaktería, mænusótt (stungulyf), taugaveiki (stungulyf), heilabólga vegna skógarmítils (TBE), japönsk heilabólga, hundaæði, kólera, heilahimnubólgubaktería, miltisbrandur.
Athuga sérstaklega:
COVID-19 bóluefni: Ekki má gefa blóð ef innan við 7 dagar hafa liðið frá bólusetningu.
Bólusetningu gegn lifrarbólguveiru B: Má ekki gefa blóð ef innan við 2 vikur hafa liðið frá bólusetningu.
Hundaæði: Ef bólusetning er gerð vegna gruns um smit: Má gefa blóð 1 ári eftir bólusetningu og öllu eftirliti sé lokið.
Sérstakar reglur gilda um berklabóluefni:
Berklapróf: Gefa má blóð þegar 1 vika er liðin frá berklaprófi og engar frekari rannsóknir / meðferðir eru fyrirhugaðar.
Berklabólusetning: Gefa má blóð þegar 1 mánuður er liðinn frá bólusetningu.
Til fróðleiks:
Flest dauð bóluefni gefin í fyrirbyggjandi skyni hindra ekki blóðgjöf en bólusetning með lifandi bóluefni getur hindrað blóðgjöf í ákveðinn tíma vegna hættu á smiti. Við bólusetningu með dauðu bóluefni er ekki notað efni sem getur valdið sýkingu. Það þýðir að einstaklingur sem þiggur blóð frá gjafa sem nýlega hefur verið bólusettur er ekki í áhættu á að verða veikur.
Séu bóluefni gefin eftir að gjafi hefur hugsanlega verið útsettur fyrir smitefnum (t.d. eftir dýrabit) má ekki gefa blóð í ákveðinn tíma.
Lykilorð: J07A: Barnaveiki, kíghósti, kikhósti, stífkrampi (Boostrix, J07AJ52), hemofilus influensa (Act-HIB, J07AG01), Kólera (Dukoral, J07AE01), Meningókokkar (MenQuadfi/ Nimenrix, J07AH08), Pnemókokkar (Pneumovax, J07AL01, Prevenar 13, 20, Vaxneuvance, J07AL02, Synflorix, J07AL52), Heilahimnubólga, meningitis (NeisVac-C J07AH07), Taugaveikisbóluefni (Typhim Vi, J07AP03) J07B: Veirubóluefni: Heilabólguveira TBE (encefalit), (TicoVac J07BA01), Inflúensa (Influvatetra, Vaxigrip Tetra, J07BB02), Lifrarbólga B (Engerix, B J07BC01), Lifrarbólga A (dauð veira, HarvixJ07BC02), Lifrarbólgubóluefni /blöndur (Twinrix J07BC20), Mislingabóluefni (M-M-RVAXPRO, J07BD52, ProQuad, J07BD54), Bóluefni við niðurgangi að völdum rótaveiru, (RotaTeq, J07BH02), Hlaupabólubóluefni (veikluð veira, Varilrix, Varivax, J07BK01), Gulusóttarbóluefni (veikluð veira, Stamaril, J07BL01), Papillomaveirubóluefni (Gardasil 9, J07BM03), Covid-19-bóluefni (Comirnaty, J07BN01, Nuvaxovid, J07BN04), Önnur veirubóluefni (Abrysvo J07BX05, IMVANEX, J07BX) J07C: Bakteríu- og veiru í blöndum: Boostrix Polio/ Repevax, Pentavac
Gildir frá: 18. mars 2026
