Panta tíma í blóðgjöf
Hægt er að stytta biðtímann með því að bóka tíma í blóðgjöf. Nýir blóðgjafar geta einnig bókað tíma í fyrstu heimsókn. Þú getur bókað tíma með því að:
hringja í Blóðbankann Snorrabraut sími: 543 5500
hringja í Blóðbankann Akureyri sími: 543 5560
fylla út formið, við höfum samband til að klára tímabókunina
Blóðbankinn minnir þig á bókaðan tíma með sms skilaboði.
Ef þú ert óviss hvort þú megir gefa blóð vegna nýlegra veikinda, sjúkdóma, lyfja eða annars slíkt getur þú kíkt á leiðbeiningar um hvenær má gefa blóð áður en þú pantar tíma.
Beiðni um tímabókun
Hefur þú gefið blóð áður?
Nýir blóðgjafar: Við fyrstu komu er sýnataka, farið yfir heilsufarssögu og tekinn blóðþrýstingur. Eftir 2-3 vikur er hægt að koma aftur og gefa blóð.
Fyrsta blóðgjöf: Við mælum með því að bóka ekki mjög snemma að morgni, þar sem mikilvægt er að borða góða máltíð og drekka vel um tveimur klukkustundum fyrir fyrstu blóðgjöf.