Fara beint í efnið

Kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík

Einstaklingum sem eiga íbúðarhúsnæði í Grindavík býðst að selja það til Fasteignafélagsins Þórkötlu sem er í eigu ríkisins. Hægt er að óska eftir að félagið kaupi húsnæðið til 31. desember 2024.

Umsókn um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík

Þau sem ekki geta nýtt sér stafræna umsókn er bent á að hafa samband í gegnum samskiptaform en haft verður sambandi við fólk í framhaldinu.

Eftir að umsókn hefur verið send inn fer hún í umsýslu til sýslumanna fyrir hönd Fasteignafélagsins Þórkötlu sem annast kaup, umsýslu og ráðstöfun íbúðarhúsnæðisins.

Þau sem ákveða að selja ekki eiga áfram rétt á bótum frá NTÍ ef húsnæðið skemmist af völdum náttúruhamfara.

Skilyrði

Skilyrði sem gilda um eiganda húsnæðis

  • Þinglýstur eigandi þarf að vera einstaklingur eða dánarbú.

  • Þinglýstur eigandi þarf að hafa verið með skráð lögheimili í eigninni 10. nóvember 2023.
    Hægt er að sækja um undanþágu frá skilyrði um lögheimili ef tímabundnar aðstæður skýra það. Þau sem eru undanþegin lögheimilisskráningu á þessum tíma skulu snúa sér til sýslumanna með sína umsókn.

Mitt lögheimili á Mínum síðum Ísland.is

Skilyrði sem gilda um húsnæði

  • Húsnæðið þarf að vera íbúðarhúsnæði.

  • Húsið má vera fullbúið eða enn í smíðum. Húsnæði í smíðum þarf að vera vátryggt með brunatryggingu húseignar í smíðum.

  • Húsnæðið þarf að vera staðsett innan þéttbýlismarka Grindavíkurbæjar samkvæmt gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.

  • Húsnæðið má vera metið óviðgerðarhæft af Náttúruhamfaratryggingu Íslands og búið að gera upp bætur. Þá er húsnæðið tekið yfir af Þórkötlu fasteignafélagi án þess að greitt sé fyrir það.

Söluverð

Fullbúið húsnæði

Söluverð er 95% af brunabótamati eignar á söludegi. Þú getur séð brunabótamat fyrir þitt íbúðahúsnæði í Grindavík á mínum síðum.

Mínar fasteignir á Mínum síðum

Húsnæði í smíðum

Fyrir húsnæði í smíðum er söluverð 95% af áætluðu endurstofnverði miðað við byggingastig.

Endurstofnverð er áætlun á því hvað kostar að byggja húsnæðið aftur.

Ef brunabótamat eða áætlað endurstofnverð er greinilega hærra en áætlað markaðsverð 9. nóvember 2023 þá er söluverð miðað við markaðsverð sem verður metið sérstaklega af félaginu.

Greiðsla

Greiðsla til seljanda er söluverð að frádregnum eftirfarandi liðum:

Áhvílandi lán

Óski seljandi þess að Fasteignafélagið Þórkatla taki yfir lánin sem hvíla á húsnæðinu dregst það frá greiðslu.

Ef skuldir eru fallnar í gjalddaga við söluna þarf seljandi að gera þær upp samhliða, líkt og í hefðbundnum fasteignaviðskiptum.

Greiddar bætur frá NTÍ

Hafi Náttúruhamfaratrygging Íslands þegar greitt vátryggingabætur vegna húsnæðisins dragast þær frá greiðslunni.

Gjaldfallnar skuldir

Skuldir sem fallnar eru í gjalddaga við kaupin og tengjast eignarhaldi íbúðarhúsnæðisins, til dæmis húsfélagsgjöld, skulu gerðar upp af seljanda samhliða.

Verðmæti eignar hefur minnkað

Við ákvörðun fjárhæðar greiðslu er tekið tillit til þess ef verðmæti eignar hefur rýrnað að hálfu seljanda áður en samningur komst á.

Rýrnun getur til dæmis falist í að eigandi hafi fjarlægt svokallað fylgifé fasteignarinnar, hluti sem eiga almennt að fylgja með við sölu. Þetta getur til dæmis verið innréttingar, eldavél, ofn og önnur tæki, gluggatjöld, ljósleiðari, ljós og fleira þess háttar.

Sölukostnaður

Ríkissjóður í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu ber kostnað af viðskiptunum en ekki seljandi eins og venja er í fasteignaviðskiptum.

Söluferli

Umsókn

Hægt er að sækja um söluferli húsnæðis til 31. desember 2024.

Þeir sem ekki geta nýtt sér stafræna umsókn munu geta bókað tíma hjá sýslumanni og fengið meiri þjónustu.

Í umsóknarferlinu er hægt að

Fasteignafélagið Þórkatla fær til sín allar umsóknir sem berast. Ef umsókn reynist ófullnægjandi eða þörf er á viðbótargögnum þá er það tilkynnt skriflega og seljanda veittur frestur til útbóta. Annars verður umsókn synjað.

Kaupsamningur

Kaupsamningum sem eru undirritaðir rafrænt verður þinglýst rafrænt í kjölfarið.

Greiðsla

Greiðslan fer fram við undirritun kaupsamnings.

Við söluna er 5% af verðinu haldið eftir. Það fæst greitt að fullu við afsal ef engar skuldir eða eignarrýrnum kemur í ljós.

Afhending

Afhending er 1-3 mánuðum eftir undirritun kaupsamings. Kaupandi velur afhendingartíma í umsóknarferlinu.

Afsal

Afsal er um mánuði eftir afhendingu.

Þá fær seljandi síðustu greiðsluna, afsalsgreiðsluna, sem er 5% söluverðs. Til frádráttar geta komið óuppgerð fasteignagjöld, húsfélagagjöld og brunatryggingar eða aðrar kröfur sem fallnar voru í gjalddaga á afhendingardegi fasteignar.

Dæmi

Hjón velja að sækja um að Fasteignafélagið Þórkatla kaupi íbúðarhúsnæði þeirra. Þau eiga eignina saman og skiptist eignarhlutur þeirra jafnt.

Brunabótamat eignar er 45 milljónir og eignarhlutur þeirra er 30 milljónir.

  1. Þau fylla út umsókn á Ísland.is eða hjá sýslumönnum.

  2. Báðir eigendur undirita umsóknina, velja afhendingartíma og taka afstöðu til forgangsréttar til að kaupa eða leigja húsnæðið aftur síðar.

  3. Fasteignafélagið Þórkatla tekur á móti umsókninni, yfirfer og samþykkir kaupin.

  4. Báðir eigendur undirrita kaupsamninginn.

  5. Eigendur fá greiddan út sinn hlut fyrir utan 5% afsalsgreiðslu sem haldið er eftir til að gera upp ógreidd gjöld. Hvor aðili fær því 14.250.000 krónur inn á sinn reikning.

  6. Húsnæðið er afhent á þeim tíma sem valinn var í umsóknarferlinu, á bilinu 1-3 mánuðum eftir kaupsamning.

  7. Afsal og afsalsgreiðsla fer fram um mánuði eftir afhendingu.

Kæruleiðir

Framkvæmdin er byggð á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

Ákvæði stjórnsýslulaga gilda eingöngu um ákvarðanir félagsins sem varða kaup á íbúðarhúsnæði skv. 3. gr. og um veitingu forgangsréttar skv. 4. gr. Aðilum máls er heimilt að kæra ákvarðanir á grundvelli 3. og 4. gr. laganna til úrskurðarnefndar náttúruhamfaratryggingar.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15