Fara beint í efnið

Útlendingastofnun: Dvalarleyfiskort og ferðaskilríki

Fer gildistími dvalarleyfis eftir gildistíma vegabréfs?

Já. Gildistími vegabréfs verður að vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis.

Ef þú sækir um dvalarleyfi sem heimilt er að veita til allt að tveggja ára en vegabréfið þitt er aðeins gilt í 18 mánuði frá veitingardegi þá verður leyfið aðeins veitt með 15 mánaða gildistíma. Dvalarleyfið rennur því út þremur mánuðum áður en vegabréfið þitt rennur út. Þetta gildir bæði þegar sótt er um fyrsta dvalarleyfi, endurnýjun dvalarleyfis eða endurnýjun á dvalarleyfiskorti fyrir handhafa ótímabundins dvalarleyfis.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

Útlendingastofnun

Þjón­ustuver

Afgreiðslan er opin 9 - 14 alla virka daga
Þjónustuverið er opið mán - fim: 9 - 14 & fös 9 - 12

Dalvegur 18, 201 Kópavogi (sjá kort)

Sendu okkur línu

Sími: +354 444 0900