Stafrænt Ísland: Loftbrú
Hvernig get ég sótt loftbrúarkóðann?
Ferlið er einfalt. Fólk auðkennir sig með rafrænum skilríkjum inn á umsóknina og þeir sem eiga rétt á Loftbrú fá yfirlit yfir réttindi sín.
Þeir sem vilja nýta sér afsláttinn sækja á sömu síðu sérstakan afsláttarkóða sem notaður er á
bókunarsíðum flugfélaga þegar flug í áætlunarflugi er pantað.
Athugið að það þarf að nota kóðann þegar verið er að panta flugið, ekki er hægt að fá endurgreitt eftir á fyrir flug sem búið er að greiða fyrir.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Stafrænt Ísland