Alþjóðleg vernd fyrir maka flóttamanns
Fylgigögn
Það er á ábyrgð umsækjanda
að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar til staðfestingar á því að hann uppfylli skilyrði laga og reglugerða fyrir veitingu dvalarleyfis
að tryggja að gögnin séu á því formi sem gerð er krafa um og staðfest með þeim hætti sem nauðsynlegt er, sjá leiðbeiningar neðar á síðunni.
Ef fullnægjandi gögn berast ekki með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað.
Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.
Passamynd skal vera af stærðinni 35x45 mm.
Gildistími vegabréfs skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis sem sótt er um.
Ljósrit þarf að vera af:
síðu með persónuupplýsingum
síðu með undirskrift umsækjanda
Athugið að tölvulæsilegar öryggisrendur þurfa að vera vel sýnilegar á afritinu.
Sakavottorð
þarf ekki að vera lögformlega staðfest,
þarf að vera gefið út af búseturíki umsækjanda,
má ekki vera eldra en 12 mánaða þegar það er lagt fram, og
skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í viðkomandi ríki.
Komi fram dómur á sakavottorði, þarf einnig að leggja fram staðfest gögn frá yfirvöldum um hvort og hvenær umsækjandi hafi lokið afplánun.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að leggja fram þýðingu þess, sjá kröfur til skjalaþýðinga neðst á síðunni.
Ef ástæða er til getur Útlendingastofnun óskað eftir lögformlega staðfestu frumriti sakavottorðs eða að lögð séu fram sakavottorð frá fleiri ríkjum en búseturíki.
Ólíkar reglur eftir löndum
Mismunandi reglur geta gilt um útgáfu sakavottorða eftir löndum. Vottorðið þarf að sýna að leitað hafi verið í gagnagrunnum alls landsins en ekki einungis á ákveðnum svæðum (til dæmis ríkjum eða fylkjum).
Dæmi um réttmætan útgefanda:
Bandaríkin – FBI sakavottorð
Það eru tvær leiðir til að nálgast FBI sakavottorð. Annars vegar með því að póstleggja beiðni til FBI og fá útgefið sakavottorð sent til umsækjanda í bréfpósti og hins vegar með því að sækja um rafrænt sakavottorð beint frá FBI eða hjá sérstökum veitum sem samþykktar hafa verið af FBI. Það tekur styttri tíma að fá sakavottorð útgefið rafrænt með aðstoð slíkra veitna.
Á heimasíðu FBI hefur verið tekinn saman listi yfir þær veitur sem samþykktar hafa verið af FBI. Hafa þarf í huga að vottorð frá sumum veitum er ekki hægt að opna utan Bandaríkjanna og því ekki hægt að nota þjónustu þeirra til að skila sakavottorði til Útlendingastofnunar.Í báðum tilfellum þarf umsækjandi að láta taka af sér fingraför og senda þau með beiðni um sakavottorð. Hér á landi eru fingraför tekin af umsækjanda hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Kanada – RCMP sakavottorð byggt á fingraförum
Filippseyjar – NBI sakavottorð
Taíland – Royal Thai Police
Brasilía – Ministério da Justica – Polícia Federal
Mexíkó – SEGURIDAD - (Secretaría De Seguridad Y Protección Ciudadana)
Bretland – ACRO sakavottorð (ACRO Criminal Records Office - Police Certificates)
Athugið að oft tekur nokkurn tíma að fá útgefið sakavottorð og viðeigandi staðfestingu.
Ef þú sækir um sem maki á grundvelli hjónabands þarftu að leggja fram
Frumrit eða staðfest afrit af frumriti hjúskaparvottorðs.
Frumrit vottorðsins þarf að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun.
Staðfest afrit er tekið af frumriti sem hefur verið lögformlega staðfest.
Frumrit eða staðfest afrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á hjúskaparvottorði.
Á aðeins við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.
Þýðingar gerðar af löggildum skjalaþýðanda á Íslandi þurfa ekki að vera lögformlega staðfestar.
Ef þú sækir um sem maki á grundvelli sambúðar þarftu að leggja fram
Frumrit eða staðfest afrit af hjúskaparstöðuvottorði umsækjanda.
Vottorðið má ekki vera eldra en sex mánaða þegar umsókn er lögð fram.
Frumrit eða staðfest afrit af hjúskaparstöðuvottorði sambúðarmaka sem búsettur er á Íslandi.
Frumrit vottorðanna þurfa bæði að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun.
Staðfest afrit er tekið af frumriti sem hefur verið lögformlega staðfest.
Frumrit eða staðfest afrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á hjúskaparstöðuvottorði umsækjanda.
Frumrit eða staðfest afrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á hjúskaparstöðuvottorði sambúðarmaka sem búsettur er á Íslandi.
Á aðeins við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.
Þýðingar gerðar af löggildum skjalaþýðanda á Íslandi þurfa ekki að vera lögformlega staðfestar.
Önnur gögn sem staðfesta að sambúð hafi varað í að minnsta kosti eitt ár þegar umsókn er lögð fram. Dæmi:
Vottorð um skráða sambúð.
Húsaleigusamningur þar sem bæði nafn umsækjanda og sambúðarmaka koma fyrir.
Bréf stíluð á umsækjanda og send á heimilisfang þar sem staðfest er að sambúðarmaki hefur skráða búsetu, til dæmis:
Stöðuyfirlit bankareikninga.
Símareikningar.
Kvittanir fyrir kaup á netsíðum (t.d. Amazon).
Annar póstur varðandi útgjöld tengd sameiginlegu heimilishaldi (tryggingar, áskriftir, lánasamningar eða aðrir reikningar).
Ef þú vilt að einhver annar en þú fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun þarftu að skila inn umboði þess efnis.
Viðbótargögn sem maki flóttamanns gæti þurft að leggja fram
Útlendingastofnun getur óskað eftir afriti af samskiptum milli umsækjanda og flóttamanns sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, til dæmis á samskiptaforritunum Viber, Facebook eða WhatsApp.
Ekki þarf að afhenda afrit af öllum samskiptum heldur aðeins að sýna fram á að samskipti hafi spannað tiltekið tímabil.
Hægt er að taka skjáskot af samskiptum og senda sem viðhengi á utl@utl.is, prenta út og skila til Útlendingastofnunar eða skila þeim inn á USB lykli.
Útlendingastofnun getur óskað eftir ljósmyndum af umsækjanda og flóttamanni, sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, saman við hátíðahöld, á ferðalögum sem og úr hversdagslífi þeirra á mismunandi tímum.
Hægt er að senda myndir sem viðhengi á utl@utl.is eða skila þeim inn á USB lykli.
Hvenær og hvar umsækjandi og maki kynntust.
Hvenær og hvar umsækjandi og maki giftu sig/hófu sambúð.
Hvenær og hvar umsækjandi og maki tóku ákvörðun um að giftast (ef við á).
Hver hafði frumkvæði að hjúskapnum (ef við á).
Hvar umsækjandi og maki bjuggu eftir giftingu eða upphaf sambúðar (staðir og dagsetning ef mögulegt).
Hvar umsækjandi bjó eftir aðskilnað við maka (borg eða bær).
Hvort umsækjandi hafi búið hjá skyldmennum, vinum eða á eigin vegum.
Hvernig og hversu oft umsækjandi og maki hafa verið í sambandi frá aðskilnaði þeirra.
Hvers vegna umsækjandi fylgdi ekki maka þegar maki fór til Íslands og sótti um alþjóðlega vernd.
Útlendingastofnun getur óskað eftir að fá skriflegar upplýsingar um hvort umsækjandi hafi einhver fjölskyldutengsl hér á landi, það er hvort viðkomandi eigi aðra ættingja á Íslandi en þann sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, og hvernig þeim fjölskyldutengslum er háttað.
Skriflegar upplýsingar þurfa að berast frá umsækjanda.
Ef þörf þykir getur Útlendingastofnun óskað eftir að umsækjandi leggir fram sakavottorð í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
Vottorðið skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í búsetulandi umsækjanda.
Það má ekki vera eldra en 12 mánaða á umsóknardegi.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja þýðing löggilts skjalaþýðanda.
Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar.
Kröfur til skjala
Útskýringar á kröfum sem gerðar eru til skjala sem skila þarf inn með umsókn.
Frumrit er aðaleintak skjals, það er fyrsta rit og ekki afrit.
Gerð er krafa um að frumrit erlendra skjala sem lögð eru fram með umsókn séu lögformlega staðfest. Frumrit íslenskra skjala þurfa ekki að vera staðfest.
Tvær viðurkenndar leiðir eru til þess að lögformlega staðfesta skjöl: apostille vottun og keðjustimplun. Hvor leiðin er farin ræðst af útgáfulandi skjals.
Apostille vottun
Apostille vottun er gerð í útgáfulandi vottorðs.
Til að fá apostille vottun þarf umsækjandi að fara með frumrit skjals til þess stjórnvalds sem veitir slíka vottun í útgáfulandi skjalsins áður en hann leggur inn umsókn.
Upplýsingar um hvaða lönd eru aðilar að Apostille samningnum.
Keðjustimplun
Keðjustimplun (einnig kallað tvöföld staðfesting) er notuð í löndum þar sem ekki er hægt að fá apostille vottun.
Það þýðir að vottorð þarf tvo stimpla til að geta talist lögformlega staðfest, annan frá útgáfulandi skjalsins og hinn frá sendiskrifstofu Íslands gagnvart útgáfulandinu.
Til að fá slíka stimplun þarf fyrst að senda frumskjalið til utanríkisráðuneytis þess lands sem gaf út skjalið. Viðkomandi ráðuneyti staðfestir skjalið og sendir það áfram til sendiráðs Íslands gagnvart útgáfulandinu eða umsækjandi sér sjálfur um að koma skjalinu til sendiráðsins. Sendiráð Íslands gagnvart útgáfulandinu staðfestir að lokum að fyrri stimpillinn sé réttur.
Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands
Með staðfestu afriti er átt við að afrit sé tekið af frumriti skjals og það staðfest af stjórnvaldi sem hefur heimild til að staðfesta skjöl.
Opinbert stjórnvald í útgáfulandi (útgáfuaðili eða annar opinber aðili) getur tekið staðfest afrit af skjölum.
Mikilvægt er að frumrit skjals hafi fengið lögformlega staðfestingu áður en tekið er af því staðfest afrit.
Ef erlent skjal er gefið út á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, þarf einnig að leggja fram þýðingu þess.
Þýðing þarf að vera í frumriti eða staðfestu afriti.
Þýðing þarf að vera gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
Þýðing má vera á íslensku, ensku eða Norðulandamáli.
Ef þýðing er unnin af skjalaþýðanda sem ekki hefur fengið löggildingu á Íslandi þarf frumrit þýðingarinnar að vera lögformlega staðfest.
Listi yfir löggilta skjalaþýðendur
Félag löggiltra dómtúlka og skjalaþýðenda
Í sumum tilvikum þarf umsækjandi að leggja fram vottaða yfirlýsingu. Gerð er krafa um að yfirlýsingar séu lagðar fram í frumriti og séu dagsettar og undirritaðar af þeim aðila sem gefur yfirlýsinguna. Þá þarf yfirlýsingin að vera vottuð af opinberum aðila, til dæmis af lögbókanda (notarius publicus).
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun