Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu
Tilkynningarskyldir aðilar
Aðilar sem eru tilkynningarskyldir samkvæmt lögum
Fjármálafyrirtæki samkvæmt skilgreiningu laga um fjármálafyrirtæki.
Líftryggingafélög samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
Vátryggingamiðlarar og vátryggingaumboðsmenn samkvæmt lögum um miðlun vátrygginga þegar þeir miðla líftryggingum eða öðrum áhættu- og söfnunartengdum líftryggingum.
Greiðslustofnanir samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
Rafeyrisfyrirtæki samkvæmt lögum um útgáfu og meðferð rafeyris.
Útibú erlendra fyrirtækja sem staðsett eru á Íslandi og falla undir a–e-lið.
Umboðs- og dreifingaraðilar fyrirtækja og samsvarandi erlendra fyrirtækja með starfsemi hér á landi sem falla undir a–e-lið.
Lífeyrissjóðir samkvæmt skilgreiningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Gjaldeyrisskiptastöðvar að undanskildum þeim aðilum sem öll eftirfarandi skilyrði eiga við um:
gjaldeyrisskipti eru hliðarstarfsemi sem tengist með beinum hætti meginstarfsemi aðilans og aðeins veitt viðskiptavinum aðilans,
heildarvelta af gjaldeyrisskiptum nemur minna en 5 millj. kr. á ári og
gjaldeyrisskipti fyrir einstakan viðskiptavin fara ekki yfir 100 þús. kr., hvort sem viðskiptin fara fram í einni færslu eða fleiri færslum sem virðast tengjast hver annarri.
Þjónustuveitendur sem bjóða upp á viðskipti milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla.
Þjónustuveitendur stafrænna veskja, sbr. skilgreiningu í 3. gr.
Endurskoðunarfyrirtæki, endurskoðendur, skattaráðgjafar og aðilar sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi.
Lögmannsstofur, lögmenn og aðrir sérfræðingar í eftirfarandi tilvikum:
þegar þeir sjá um eða koma fram fyrir hönd umbjóðanda síns í hvers kyns fjármála- eða fasteignaviðskiptum,
þegar þeir aðstoða við skipulagningu eða framkvæmd viðskipta fyrir umbjóðanda sinn hvað varðar kaup og sölu fasteigna eða fyrirtækja,
þegar þeir sjá um umsýslu peninga, verðbréfa eða annarra eigna umbjóðanda síns,
þegar þeir opna eða hafa umsjón með banka-, spari- eða verðbréfareikningum,
þegar þeir koma að öflun, skipulagningu eða umsjón með framlögum til að stofna, reka eða stýra fyrirtækjum,
þegar þeir aðstoða við stofnun, rekstur eða stjórnun fyrirtækja, fjárvörslusjóða eða annarra sambærilegra aðila.
Fasteignasölur og fasteigna-, fyrirtækja- og skipasalar.
Leigumiðlarar þegar mánaðarlegar leigugreiðslur nema 10.000 evrum eða meira miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
Listmunasalar eða listmunamiðlarar, þar á meðal listmunagallerí og uppboðshús, þegar um er að ræða viðskipti í einni greiðslu eða fleiri sem virðast tengjast hver annarri, að fjárhæð 10.000 evrur eða meira miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
Aðilar á sviði fjárvörslu og fyrirtækjaþjónustu, sbr. skilgreiningu í 3. gr.
Einstaklingar og lögaðilar sem í atvinnuskyni eiga viðskipti sem greitt er fyrir með reiðufé, hvort sem viðskiptin fara fram í einni greiðslu eða fleiri sem virðast tengjast hver annarri, að fjárhæð 10.000 evrur eða meira miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.
Einstaklingar eða lögaðilar sem hafa hlotið starfsleyfi á grundvelli laga um happdrætti eða til reksturs fjársafnana og happdrætta á grundvelli sérlaga.