Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu

Hrein jörð hreinir peningar
26. mars 2025
Alþjóðleg ráðstefna í Lettlandi
Dagana 24.-25. mars fór fram alþjóðleg ráðstefna í Riga um peningaþvætti í tengslum við umhverfisbrot undir yfirskriftinni „Clean Earth, Clean Money: unmasking environmental crimes and money laundering“.
Að ráðstefnunni stóðu FIU Latvia ásamt skrifstofu fjármálagreininga lögreglu. Ráðstefnan var hluti samstarfsverkefnis Lettlands, Íslands og Noregs varðandi málaflokkinn fyrir tilstilli EFTA
Fjöldi erlendra systurstofnana sfl. tóku þátt í ráðstefnunni ásamt alþjóðastofnunum á borð við Europol og Sameinuðu þjóðirnar.