Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu

Áhættumat vegna peninga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka – Uppfærsla 2025: Erlendir lögað­ilar og erlendir fjár­vörslu­sjóðir

12. desember 2025

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út uppfæslur á áhættumati um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka frá 2023.

Áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka var síðast gefið út í desember 2023 og skal, samkvæmt lögum, uppfært árið 2027. Samkvæmt framangreindu skal þó tekin afstaða til þess hvort þörf sé á uppfærslu eigi síðar en árið 2025.

Í ljósi þess ákvað ríkislögreglustjóri að slík uppfærsla skyldi ná til tveggja nýrra kafla, annars vegar um erlenda lögaðila og hins vegar um erlenda fjárvörslusjóði. Þessir áhættuþættir tengjast tilmælum FATF nr. 24 og 25 og hafa ekki áður verið metnir sérstaklega í áhættumatinu.

Báðir þessir áhættuþættir voru metnir með litla áhættu.