Fara beint í efnið

Almyrkvi 12. ágúst 2026

Gagnlegar upplýsingar frá Samgöngustofu og Vegagerðinni

9. júlí 2026

Bæði Samgöngustofa og Vegagerðin eru með upplýsingavefi þar sem hægt er að kynna sér leiðbeiningar varðandi almyrkvann 12. ágúst.

Samgöngustofa hefur birt á vef sínum upplýsingar til þeirra sem ætla að ferðast, sigla eða fljúga dróna í tengslum við almyrkvann 12. ágúst.

Á vefnum má meðal annars finna upplýsingar um þau leyfi sem þarf fyrir farþegaflutningum á sjó. Þar eru gerðar kröfur um öryggisbúnað, viðeigandi tryggingar og mönnun til að tryggja öryggi farþega og áhafnar.

Þeir sem ætla að fljúga dróna eru beðnir um að kynna sér gildandi reglur um notkun þeirra; takmarkanir, loftrýmisupplýsingar og önnur skilyrði. Allar upplýsingar um reglur, leyfi, skráningu og drónakort eru að finna á vef Samgöngustofu.

Vegagerðin er sömuleiðis með upplýsingar á sínum vef vegna almyrkvans. Þar er hægt að kynna sér vegalokanir og umferðarstýringu. Stýring umferðar hefst klukkan 8:00 á almyrkvadegi og stendur eins lengi og þörf er á. Gera má ráð fyrir lægri umferðarhraða og eru ökumenn hvattir til að sýna þolinmæði.

Sem fyrr eru það tilmæli stjórnvalda til þeirra sem búa á almyrkvaslóðinni að njóta almyrkvans heima eða í sínu nærumhverfi og draga þannig úr álagi á innviði. Þeir sem ætla að ferðast ættu að skipuleggja ferðalagið vel, vera tímanlega og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.