Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari á starfsbraut

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2025

Umsóknarfrestur

23.04.2025

Sérkennari á starfsbraut

Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar eftir að ráða sérkennara eða þroskaþjálfa með sérkennsluréttindi á starfsbraut skólans næsta skólaár.

Ráðningartími er frá 1. ágúst 2025 og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og KÍ hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér vinnu með nemendum á starfsbraut skólans sem þarfnast sérstakrar umönnunar og hæfingar. Kennari skipuleggur og undirbýr kennslu, og metur nám samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár. Gerir og aðlagar námsefni eftir þörfum, gerir námsáætlun og eftir aðstæðum einstaklingsáætlun og viðheldur faglegri hæfni sinni. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.

Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi og viðhlýtandi menntun í sérkennslufræðum.

Kennslureynsla er mikilvæg og reynsla af að vinna með fötluðum ungmennum er skilyrði.

Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson, kras@fss.is

Sími: 421-3100

Guðmundur Grétar Karlsson, gudmundur.karlsson@fss.is

Sími: 421-3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari á starfsbraut

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2025

Umsóknarfrestur

23.04.2025