
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Almennt starf í flutningaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025
Almennt starf í flutningaþjónustu
Aðfangaþjónusta auglýsir eftir öflugum einstaklingum í vaktavinnu við flutningaþjónustu Landspítala. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfsstöð er við Hringbraut.
Leitað er að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Flutningaþjónusta veitir afar mikilvæga þjónustu innan veggja Landspítala við deildir, sjúklinga og gesti. Má þá helst nefna flutninga á sjúklingum og sýnum eftir beiðnum og fasta flutninga á vörum, lyfjum, líni, pósti og sorpi. Starfsfólk flutningaþjónustu heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemin gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum. Markmið flutningaþjónustu er að veita framúrskarandi þjónustu við deildir spítalans og létta þannig undir með klínískri starfsemi. Starfið er bæði fjölbreytt og gefandi, þar sem lögð er áhersla á gott samstarf innan teymisins sem og við starfsfólk annarra deilda.
Flutningaþjónusta er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem tilheyrir Rekstrar- og mannauðssviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Flutningur á sjúklingum á milli deilda
Flutningur á sýnum, pósti, hraðsendingum, blóðeiningum o.fl.
Flutningur á vörum til deilda
Móttaka flutningsbeiðna og útdeiling verkefna
Móttaka á vörum inn á spítalann
Önnur tilfallandi verkefni skv. þjónustusamningum við deildir
Hæfniskröfur
Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi
Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
Góðir samskiptahæfileikar
Reynsla af þjónustustarfi eða starfi á heilbrigðisstofnun kostur
Menntun sem nýtist í starfi kostur
Íslenskumælandi kostur
Gild ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska: 3/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, flutningaþjónusta
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Birna Kristín Hrafnsdóttir, birnakhr@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Almennt starf í flutningaþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025