Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í innkaupadeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025
Starfsmaður í innkaupadeild
Viltu taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða starfsmann í innkaupadeild. Leitað er eftir metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Um tímabundna stöðu er um að ræða í eitt ár og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í móttöku og frágang á vörum, skráningu í innkaupakerfi, vörutalningu, afhendingu á vörum til deilda, auk annarra tilfallandi verkefna. Starfinu fylgir töluvert líkamlegt álag.
Hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
Æskilegt er að umsækjandi sé talnaglöggur og nákvæmur
Góð kunnátta í excel
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Góð þjónustulund
Góð færni í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Kjartansson, kjartan.kjartansson@hss.is
Sími: 4220500
Maria K. Idarraga Calderon, maria.k.calderon@hss.is
Sími: 4220500
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í innkaupadeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025