Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
25.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025
Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Heilbrigðisstofnun Suðurnejsa óskar að ráða ljósmóðir í 60-80% starf. Unnið er í vaktavinnu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf en Ljósmæðravaktin er D1 fæðingastaður þar sem heilbrigðar konur geta fætt og leggur áherslu á samfellda ljósmæðraþjónustu. Ljósmóðir sinnir meðgönguvernd, sængurlegu, göngudeildarþjónustu, krabbameinsleit og fæðingahjálp. Ljósmæður starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hæfniskröfur
Íslenskt ljósmæðraleyfi
Faglegur metnaður og vandvirkni
Jákvætt og hlýtt viðmót
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
Starfsreynsla er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 60-80%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug María Sigurðardóttir, gudlaug.m.sigurdardottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
25.03.2025
Umsóknarfrestur
07.04.2025