
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
15.04.2025
Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir 6 sérnámsstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun hjá stofnuninni. Hver sérnámsstaða er 80% sem hefst 1. ágúst 2025 og er til tveggja ára. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Námið samanstendur af fræðilegu námi við háskólana og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð undir handleiðslu lærimeistara. Námið er skipulagt til tveggja ára og lýkur með meistaragráðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Efla hæfni hjúkrunarfræðinga, meðal annars í þverfaglegu samstarfi á heilsugæslustöð
Móta viðhorf og sýn til þjónustu heilsugæslunnar í komandi framtíð
Veita nemendum tækifæri til að rýna í og innleiða gagnreynda starfshætti í daglegu starfi undir handleiðslu lærimeistara á heilsugæslustöð
Hæfniskröfur
Almennt hjúkrunarleyfi, BS gráða (lágmarkseinkunn 7)
Viðkomandi sé starfandi á heilsugæslustöð
Starfsreynsla sé a.m.k. eitt ár í heilsugæslu æskileg
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Framúrskarndi hæfni í mannlegum samskiptum
Íslenskukunátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2025
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, ragnheidur.osk.erlendsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5000

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
28.03.2025
Umsóknarfrestur
15.04.2025