Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í lífefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

25.04.2025

Lektor í lífefnafræði

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í lífefnafræði við námsbraut í lífefna- og sameindalíffræði innan Líf- og umhverfisvísindadeildar á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir á sviði lífefnafræði, auk stjórnunarskyldu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Lektornum er ætlað að byggja upp sjálfstæðar rannsóknir, fjármagnaðar af sjálfsaflafé, sem standast alþjóðlegan samanburð. Hann mun hafa aðsetur hjá Raunvísindastofnun Háskólans og starfsaðstöðu í Öskju.

Lektorinn mun m.a. kenna og hafa umsjón með námskeiðum í lífefnafræði, þ.m.t. á sviði próteinvísinda, bæði í grunn- og framhaldsnámi, auk þess að koma að kennsluþróun. Honum er einnig ætlað að leiðbeina grunn- og framhaldsnemum í rannsóknanámi á sömu sviðum. Í starfinu felst jafnframt þátttaka í stjórnun deildarinnar og önnur akademísk þjónustu- og stjórnunarstörf.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í lífefnafræði, eða tengdum sviðum.

  • Reynsla af háskólakennslu, æskilegt er að sú reynsla sé á sviði lífefnafræði.

  • Virkni og sjálfstæði í rannsóknum á alþjóðavettvangi, frá því að doktorsnámi lauk, sem meðal annars birtist í ritrýndum rannsóknagreinum á viðurkenndum vettvangi.

  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði.

  • Reynsla af rannsóknasamstarfi og öflun rannsóknastyrkja er æskileg.

  • Þekking á sviði próteinvísinda er kostur.

  • Góð íslenskukunnátta er kostur.

  • Góð færni í ensku í ræðu og riti.

Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.

Kennsla í grunnnámi fer almennt fram á íslensku og ætlast er til þess að viðkomandi geti kennt á íslensku innan fimm ára frá upphafi starfs. Háskóli Íslands býður starfsfólki sem þarf upp á námskeið í íslensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil í háskólanámi.3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae).4. Ritaskrá.5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur.7. Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.

Í umsókn skal koma fram hver ritverka, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.

Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur, þar af um fjórðungurinn framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.

Við Líf- og umhverfisvísindadeild fer fram kennsla í grunnnámi í líffræði, sameindalíffræði og lífefnafræði, auk menntunar meistara- og doktorsnema á viðkomandi sviðum. Áhersla er lögð á grunnrannsóknir og miðlun vísindalegrar þekkingar til samfélagsins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Snædís Huld Björnsdóttir, snaedis@hi.is

Gunnar Þór Jóhannesson, gtj@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor í lífefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.03.2025

Umsóknarfrestur

25.04.2025