Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
04.03.2025
Umsóknarfrestur
25.03.2025
Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80 - 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og er staðan laus frá 1.júlí eða eftir nánara samkomulagi.Einnig er í boði afleysing í styttri eða lengri tíma, möguleiki á húsnæði.
HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 470 manns starfa á fjórtán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf hjúkrunarfræðinga á sjúkradeildinni eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum hópi skjólstæðinga. Unninn eru almenn hjúkrunarfræðingsstörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.
Hæfniskröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Birgitta Inga J. Hauksdóttir, birgitta.hauksdottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir, sigridur.kristinsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
04.03.2025
Umsóknarfrestur
25.03.2025