Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild - Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
26.02.2025
Umsóknarfrestur
26.03.2025
Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild - Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað
Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa á endurhæfingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað, Fjarðabyggð. Hér gefst kjörið tækifæri til að öðlast breiða þekkingu innan fagsins, vinna með skemmtilegu fólki og verða hluti af liðsheild. Starfshlutfall er 100% og staðan er laus nú þegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Unnið er með breiðum skjólstæðingahópi og er meðferð veitt á göngudeild og legudeild sjúkrahússins.
Helstu verkefni eru:
Skoðun, mat og meðferð á göngudeild/legudeild
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegum teymum
Þátttaka í fagþróun
Hæfniskröfur
Starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Embætti landlæknis.Skipulögð vinnubrögð, jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.Íslenskukunnátta kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Lind Sævarsdóttir, jona.l.saevarsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild - Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
26.02.2025
Umsóknarfrestur
26.03.2025