Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi á Siglufirði
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.02.2025
Umsóknarfrestur
13.03.2025
Þjónustufulltrúi á Siglufirði
Fjölbreytt starf þjónustufulltrúa hjá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, með starfsstöð á Siglufirði, er laust til umsóknar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða áhugavert, fjölbreytt og krefjandi skrifstofustarf.
Starfið felst í vinnslu sérverkefnis tengt útgáfu leyfisbréfa til löggiltra fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala, auk vinnslu annarra sérverkefna embættisins, sem unnin eru í teymi starfsfólks.
Að auki felast í starfinu fjölbreytt afgreiðsluverkefni og afleysingar vegna þeirra fjölmörgu málaflokka sem sýslumannsembættið sinnir sem og þeirra verkefna sem unnin eru í umboði annarra stofnana. Þjónustufulltrúi vinnur að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt gildandi lögum og verkferlum.
Hæfniskröfur
Starfsreynsla og þekking sem nýtist vel í starfi
Góð þekking og færni á helstu tölvuforritum
Hæfni til að tileinka sér ýmis sérhæfð tölvukerfi nauðsynleg
Vandvirkni og ögun í vinnubrögðum og skipulagsfærni
Mjög gott frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Framúrskarandi þjónustulund
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra leggur áherslu á góða þjónustu og öfluga liðsheild og mjög góðan starfsanda. Tekin hefur verið upp 36 stunda vinnuvika. Skrifstofur embættisins eru á Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Dalvík og Þórshöfn og starfsfólk er 25 talsins.
Embættið annast verkefni á borð við umsóknir um vegabréf og ökuskírteini, innheimtu skatta og annarra gjalda, starfrækir umboð Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar, sinnir ýmsum opinberum skráningum svo sem þinglýsingum og fer með ýmsa málaflokka á borð við fjölskyldumál og fullnustugerðir.
Sýslumenn fara með framkvæmdavald ríkisins í héraði og veita margvíslega opinbera þjónustu um land allt, ýmist rafrænt eða á fjölmörgum skrifstofum sýslumanna. Nýr kafli er hafinn í sögu embættanna sem byggir á tækniframförum, stafrænni vegferð og þróun þjónustulausna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Eydís Eyjólfsdóttir, eydis.eyjolfsdottir@syslumenn.is
Sími: 4582600
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustufulltrúi á Siglufirði
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.02.2025
Umsóknarfrestur
13.03.2025