Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2025

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

29.01.2025

Umsóknarfrestur

01.04.2025

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2025

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða Skurðhjúkrunarfræðing á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í sumarafleysingu. Starfshlutfall er 80%, um er að ræða dagvinnu og auk bakvakta 4-6 vikur á tímabilinu júlí - ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur á skurðstofu sinnir útköllum á skurðstofu og sér um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerðir inni á skurðstofu, aðstoðar við framkvæmd aðgerða og sér um verkfæri og tækjabúnað sem við á. Vegna minnkaðrar starfsemi skurðdeildarinnar yfir orlofstímann felst í starfinu afleysing á öðrum deildum Umdæmissjúkrahússins í samráði við viðkomandi.

Hæfniskröfur

Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis. Sérmenntun í skurðhjúkrun skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Skilyrði að hafa gilt ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 01.04.2025

Nánari upplýsingar veitir

Jenný Lind Hjaltadóttir, jenny.l.hjaltadottir@hsa.is

Óli Freyr Axelsson, oli.f.axelsson@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Skurðhjúkrunarfræðingur - Neskaupstaður - Skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2025

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

29.01.2025

Umsóknarfrestur

01.04.2025