Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir speglunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

10.02.2025

Yfirlæknir speglunar

Starf yfirlæknis speglunar innan meltingarsérgreinar Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir speglunar er leiðtogi og hefur faglega ábyrgð á starfsemi speglunarþjónustu spítalans. Auk þess gegnir hann mikilvægu hlutverki í skipulagningu, þróun, kennslu og vísindastarfi.

Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga. Hann vinnur að umbótastarfi og þróun innan speglunar í nánu samstarfi við yfirlækni meltingarlækninga og forstöðumann lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu og framkvæmdastjóra meðferðarsviðs. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. mars 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á skipulagi og þróun speglunarþjónustu Landspítala, þ.m.t. kennslu og vísindastarf

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í lyflækningum eða skurðlækningum

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar

  • Færni í faglegu stjórnunarhlutverki

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Þekking, mikil reynsla og færni í speglun meltingarvegar og inngripum með speglun

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum.

  • Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).

  • Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð á síðuna eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.

  • Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn

  • Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Yfirlæknir, Sérfræðilæknir, Læknir með lækningaleyfi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Rafn Benediktsson, rafnbe@landspitali.is

Sími: 824-5929

Már Kristjánsson, markrist@landspitali.is

Sími: 824-5607

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir speglunar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

10.02.2025