Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á meðgöngu- og sængurlegudeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
28.01.2025
Umsóknarfrestur
11.02.2025
Sjúkraliði á meðgöngu- og sængurlegudeild
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á meðgöngu- og sængurlegudeild á kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Óskað er eftir sjúkraliða sem er framúrskarandi í mannlegum samskiptum, sjálfstæður í vinnubrögðum og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Um er að ræða starf í vaktavinnu 60-100% starfshlutfall eftir samkomulagi. Ráðið verður í starfið frá 1. apríl 2025 eða samkvæmt samkomulagi.
Deildin sinnir heilbrigðum og veikum konum í sængurlegu eftir fæðingu. Einnig annast deildin konur sem þurfa innlögn og náið eftirlit á meðgöngu og við missi á meðgöngu við 12-22 vikur. Veitt er fagleg umönnun með fjölskylduhjúkrun að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umönnun og eftirlit skjólstæðinga í samvinnu við aðra fagaðila
Ábyrgð og umsjón með aðbúnaði, m.a. frágangur, áfyllingar og birgðaumsjón
Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
Jákvætt viðmót, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni til að sinna almennum og sérhæfðum verkefnum sjúkraliða
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
María Guðrún Þórisdóttir, mariath@landspitali.is
Sími: 543-3046
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á meðgöngu- og sængurlegudeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
28.01.2025
Umsóknarfrestur
11.02.2025