Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir í Transteymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
28.01.2025
Umsóknarfrestur
07.02.2025
Læknir í Transteymi
Langar þig að taka þátt í framsæknu og spennandi þróunarstarfi?
Landspítali óskar eftir metnaðarfullum lækni til starfa í transteymi spítalans.
Transteymið er fjölfaglegt og þverfaglegt samstarfsteymi sem vinnur að umbótum í þjónustu við einstaklinga sem leita sér heilbrigðisþjónustu vegna kynvitundar og tengdra málefna.
Starfshlutfall er allt að 50%, dagvinna og er starfið laust frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi.
Boðið er upp á:
Þjálfun og aðlögun í starfi
Tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi sem er í stöðugri framþróun.
Starfsumhverfi sem einkennist af virðingu, fagmennsku og teymisvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samvinna við hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa og aðra sérfræðinga innan teymisins
Samstarf við erlenda sérfræðinga og aðgang að nýjustu þekkingu á sviðinu
Virk þátttaka í þróun og eflingu þjónustunnar
Hæfniskröfur
Reynsla af teymisvinnu og/eða áhugi á þverfaglegu samstarfi
Góð samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði og sérfæðileyfi í almennum lyflækningum, innkirtlalækningum, heimilislækningum, geðlækningum eða annarri sérgrein lækningar er æskilegt
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, sérfræðílæknir
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 4/5
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Rafn Benediktsson, rafnbe@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir í Transteymi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
28.01.2025
Umsóknarfrestur
07.02.2025