Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri launavinnslu á mannauðssviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

07.02.2025

Teymisstjóri launavinnslu á mannauðssviði

Laust er til umsóknar fullt starf teymisstjóra launavinnslu á mannauðssviði Háskóla Íslands. Teymið ber ábyrgð á launavinnslu starfsfólks Háskóla Íslands. Í starfinu felst náið samstarf við stjórnendur Háskóla Íslands. Teymið veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu til starfsfólks og stjórnenda um laun og önnur kjarasamningbundin réttindi, auk þess að annast samskipti við ytri hagsmunaaðila sem málaflokknum tengjast, s.s. fjársýslu ríkisins, lífeyrissjóði og aðrar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun teymis launaráðgjafa, útdeiling verkefna og eftirfylgni

  • Umsjón og eftirfylgni með launavinnslu háskólans

  • Ber ábyrgð á að unnið sé í samræmi við lög, reglur og kjarasamninga við launavinnslu

  • Gerð verklagsreglna og leiðbeininga um launamál

  • Skrá, greina og vinna með upplýsingar úr launakerfi HÍ

  • Ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk um launa- og kjaramál

  • Umbótaverkefni á sviði mannauðs- og launavinnslu

  • Þáttaka í verkefnum tengdum jafnlaunakerfi

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Reynsla af launavinnslu og notkun launavinnslukerfa

  • Þekking á kjarasamningsumhverfi er æskileg

  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

  • Reynsla af stjórnun er æskileg

  • Góð samstarfshæfni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Nákvæmni og öguð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess

  • Staðfest afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Ragnhildur Ísaksdóttir, ragnhildurisaks@hi.is

Steinunn Gréta Kristjánsdóttir, sgk@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri launavinnslu á mannauðssviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

07.02.2025