Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðs- og teymisstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

12.02.2025

Mannauðs- og teymisstjóri

Innviðaráðuneytið óskar eftir að ráða mannauðs- og teymisstjóra á skrifstofu stefnumótunar og fjárlaga.

Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á fólki, umbótum og býr yfir hæfni til að leiða mörg fjölbreytt og krefjandi verkefni hverju sinni.

Í innviðaráðuneytinu starfa um 40 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Hópurinn er samhentur og áhersla lögð á góðan starfsanda, samvinnu og árangur.

Nánari upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins má finna hér.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð, þróun og framkvæmd mannauðsstefnu.

  • Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks.

  • Umsjón með ráðningum og skipulagning fræðslu og þjálfunar.

  • Umsjón og stuðningur við verkefnastjórnun.

  • Þróun og skipulagning teymisvinnu og stuðningur teyma til árangurs.

  • Þróun jafnlaunakerfis og framkvæmd jafnlaunagreininga.

  • Þróun starfsumhverfis.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. sálfræði, mannauðsstjórnun, íþróttafræði. Framhaldsmenntun æskileg.

  • Þekking og marktæk reynsla á sviði mannauðsmála.

  • Reynsla eða þekking á teymisvinnu og verkefnastjórnun.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.

  • Reynsla af umbótaverkefnum og breytingastjórnun er kostur.

  • Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.

  • Gott vald á íslensku í rituðu og mæltu máli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar í störf hjá innviðaráðuneytinu er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins. Ráðuneytið hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sigurborg Kristín Stefánsdóttir, sigurborg.stefansdottir@irn.is

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Mannauðs- og teymisstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

28.01.2025

Umsóknarfrestur

12.02.2025