Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum - Viltu vera á skrá - Störf í almennri löggæslu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.12.2024
Umsóknarfrestur
30.12.2025
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum - Viltu vera á skrá - Störf í almennri löggæslu
Hér er hægt að leggja inn almenna umsókn fyrir starf í almennri löggæslu. Vinsamlega vandið umsóknir og látið ferilskrá og kynningarbréf fylgja með.
Almennum umsóknum verður ekki svarað sérstaklega en umsækjendur fara á skrá og verða umsóknir skoðaðar ef þörf er á starfsfólki til skemmri tíma eða til afleysinga.
Öll ótímabundin laus störf hjá embættinu eru auglýst og sækja þarf um þau sérstaklega.Bent er á eftirfarandi: "Samkvæmt lögum ber ríkisstofnunum að auglýsa laus störf. Undanþágur frá auglýsingaskyldu eru takmarkaðar við ráðningar til skemmri tíma en tveggja mánaða, afleysingar sem vara skulu skemur en 12 mánuði og ráðningar í störf sem auglýst hafa verið með opinni auglýsingu innan sl. 6 mánaða".
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð lögreglumanns má finna í 11. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar. Meðal verkefna lögreglumanns er að halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og fyrirmæli sem honum eru gefin.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Umsækjandi þarf að standast bakgrunnsskoðun flugverndar með jákvæðri umsögn. Lögreglustjóri mun nýta sér heimild lögreglulaga til að ráða starfsmenn sem hafa ekki lokið prófi frá lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar, að því gefnu að ekki fáist tiltækur fjöldi menntaðra lögreglumanna í lausar stöður.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er vaktavinna.
Umsækjendur sem ekki hafa lokið lögreglunámi þurfa að standast þrekpróf, sjá þrekkröfur hér: https://menntaseturlogreglu.is/wp-content/uploads/2023/10/THrekkrofur-fyrir-umsaekjendur-um-logreglufraedi-2024-2026.pdf
Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.
Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/04/Persónuverndaryfirlýsing-til-umsækjenda.pdf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.12.2025
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Þórdís Þorgilsdóttir, ktt01@logreglan.is
Sími: 4442200
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum - Viltu vera á skrá - Störf í almennri löggæslu
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.12.2024
Umsóknarfrestur
30.12.2025