Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á gjörgæsludeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarafleysingar á gjörgæsludeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Við leitum að bæði hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í okkar góða lið á gjörgæsludeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Hjúkrunarnemar skulu helst hafa lokið 2 námsárum
Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Brynja Dröfn Tryggvadóttir, brynjadr@sak.is
Sími: 463-0100
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á gjörgæsludeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025