Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á geðdeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025
Sumarafleysingar á geðdeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Við leitum að bæði hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í okkar góða lið á geðdeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum.
Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og starfsleyfi
Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Bernard Hendrik Gerritsma, bernard@sak.is
Sími: 4630228
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysingar á geðdeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
31.01.2025