Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar

Langar þig að nýta þekkingu þína og hæfileika og vinna í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?

Við leitum að bæði hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í sumarafleysingar í okkar öfluga teymi á lyflækningadeild. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.

Hvað gerir starfið spennandi:

  • Reynsla sem skiptir máli

  • Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi

  • Teymisvinna

  • Fagleg þróun

  • Vaktavinna

  • Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum

  • Vinna samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar

  • Hjúkrunarnema munu aðstoða við daglega hjúkrun og öðlast dýpri þekkingu á ferlum og verkefnum í hjúkrun

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi

  • Hjúkrunarnemi skulu hafa lokið a.m.k þremur árum í hjúkrunarfræði en hvetjum einnig nemendur á 1. og 2. ári að sækja um

  • Starfsreynsla í hjúkrun er kostur, en ekki skilyrði

  • Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Þóra Ester Bragadóttir, thorae@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarnemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025