Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar

Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?

Við leitum að bæði sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í okkar góða lið á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Sjúkraliðar skulu hafa íslenskt sjúkraliðaleyfi (á ekki við um sjúkraliðanema)

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Þóra Ester Bragadóttir, thorae@sak.is

Sími: 4630171

Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar á lyflækningadeild - Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

18.12.2024

Umsóknarfrestur

31.01.2025