Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2025 á barnadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
28.02.2025
Sumarstörf 2025 á barnadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir hjúkrunarfræðingum/hjúkrunarfræðinemum í sumarafleysingu á barnadeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Hvað gerir starfið spennandi:
Reynsla sem skiptir máli
Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi
Teymisvinna
Fagleg þróun
Vaktavinna
Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Hæfniskröfur
Hjúkrunarfræðingar skulu hafa fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Æskilegt að hjúkrunarfræðinemar hafi lokið 3 námsárum
Starfsreynsla í hjúkrun er kostur (nemar undanþegnir)
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2025
Nánari upplýsingar veitir
Aðalheiður Guðmundsdóttir, ag0908@sak.is
Sími: 463-0163
Kristjana Kristjánsdóttir, kristjanak@sak.is
Sími: 463-0100
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2025 á barnadeild - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
18.12.2024
Umsóknarfrestur
28.02.2025